Sandblástur..
Einhverntíman þegar ég var að sulla með málingu úti í innkeyrslunni hjá mér þá lak máling á ristina á niðurfallinu..
Þetta er búið að ergja mig alveg óskaplega mikið, en sennilega hefur enginn séð þetta nema ég..
Hvað um það, ég ákvað að sandblása málinguna í burtu. Ég á ekki sandblástursgræju fyrir svona smotterý og tími ekki að kaupa hana. Gömul loftbyssa, lítil gosflaska og skyrdós var allt sem þurfti til að búa til “minisandblástur” virkaði fínt og kostaði ekki neitt (uppáhaldsverðið mitt)
Verum í bandi..