Það finnst ekkert sem er frábærara heldur en að hafa “Lítið Ljós” og “Bláskjá” í heimsókn.
Við vorum svo heppin að Pabbi og Mamma höfðu mikið að gera í vikutíma, við fengum því litlu ljósin okkar í heimsókn.
Fjóla var að vinna alla þessa viku þannig að ég fékk einkarétt á litlu skrýmslunum mínum..
Ekki hægt að hafa það meira gaman.
Hér fyrir neðan eru tvær myndir frá því að við grilluðum saman, Afi eldar ekki mat, hann grillar..
Eins og þið sjáið á bandinu hér fyrir neðan var ekki endilega leiðinlegt í Tarm þessa viku..
(Mér finnst þetta alger snilld.. 🙂 )
Ég hefði átt að taka fleiri myndir en það var bara svo gaman hjá okkur að ég gleymdi því..
Verum í bandi alles…