Hæ hó allesammen..
Nú er ég búin að vera í heimsókn hjá Afa og Ömmu í Tarm..
Þau eru á fullu að taka á móti gestum og undirbúa Brúðkaupið..
Afi minn gaf sér nú samt tíma til að leika sér við uppáhaldsbarnabarnið sitt, hann tók litla fjarstýringarborðið sitt og setti á það pappakassa og mig ofaní..
Þegar hann var orðinn alveg úrvinda á að keyra mig í hringi í íbúðinni, tók Pabbi við..
Eins og þið sjáið var ég fljót að læra að gefa Pabba merki ef mér þótti hann stoppa of lengi á stoppistöðinni..
Bandi alles..