Eftir að hafa eitt sumrinu í Morfín rúsi er ég nú aftur til baka hér á síðunni..
Nú get ég látið ljós mitt skína á ný og ausið úr óendanlegum viskubrunni mínum ykkur öllum til ómældrar gleði og ánægju.
Að vera á morfíni í lengri tíma er nokkurn veginn það andstyggilegasta sem hægt er að hugsa sér. Ég upplifi það eins og að vera í gamaldags “Köfunnarbúningi” með stórann hjálm á hausnum. Öll skynjun er brengluð og ég sé smá brot af lífinu í kringum mig og veit ekkert og man ekkert stundinni lengur. Ég ákvað svo í síðustu viku að prófa og sjá hvort ég gæti þolað við á þessa viðbjóðs og gekk það fínt. Nú er ég svo búinn að vera á fínasta “Cold Turkey” í nokkra daga…
Eins og gefur að skilja þá á ég ekki mikið efni eftir sumarið til að setja hér inn, hef nánast ekki tekið neinar myndir og man ekki hvað hefur gerst en kannski skeður eitthvað skemmtilegt og skrítið og þá kemur það hér..
Verum í bandi alles…
(Myndin hér fyrir ofan er smá tilraun til að lýsa því hvernig það er að vara að vera í morfínkúlu….)