Gleðilegt nýtt ár allesammen…

Hæ hó allesammen..

Gleðilegt nýtt ár allesammen og takk fyrir það gamla..

Nú er kominn gamlársdagur hér í Tarm og viðburðaríku ári að ljúka hjá okkur.

Það er alltaf gaman á áramótum að líta til baka og velta fyrir sér viðburðum ársins.

Þetta ár var verulega viðburðaríkt hjá okkur og fjölskyldunni og skeði margt skrítið og skemmtilegt. En þegar til baka er horft var þetta gott ár.

Það var gestkvæmt hjá okkur 2013 og er alveg snilld að fá fólkið sitt í heimsókn.

Við verðum hér heima í kvöld, ætlum að njóta þess hvað við eigum ríka nágranna, þeir kveikja í peningunum sínum og skjóta þeim uppí loftið á þessu kvöldi á hverju ári, skrítinn siður það…

Farið varlega ef þið ætlið að fikta með eldspítur í kvöld..

Verum í bandi alles..