Eins og þið sjáið á þessum myndum sem ég tók nú í vikunni er bullandi vetur hjá okkur enþá. Andstyggilegur hvíturskítur yfir öllu og hundkallt að fara út að reykja..
Einn morguninn var hrímþoka og sólskin. Sólarljósið brotnaði á undarlegan hátt í þokunni og Orkídea sem við erum með í stofuglugganum hjá okkur varð alveg glóandi í nokkrar mínútur.
Þetta fyrirbæri hef ég aldrei séð áður þannig að gat ekki staðist freistinguna og tók mynd af þessu. Myndin getur ekki alveg sýnt hvað þetta var skrítið en er þó betri en ekkert.
Verum í bandi alles..