Sullumbull….

Hæ hó allesammen..

Nú er ég búin að vera í pössun hjá Ömmu og er búin að vera dugleg að passa Afa..

Ég er nú farin heim til Aarhus til að hjálpa Mömmu að gera jólin klár.

Ég var sett í balabað áður en ég fór heim og fannst það nú heldur gaman.

Það er einhver hefð hjá Ömmu að balabaða börn, ég sá hjá henni mynd af einhverjum viðkunnanlegum krökkum sem hún setti í balabað einhverntíma á síðustu öld…..