Hæ hó alles..
Eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan þá erum við enþá laus við veturinn, allt blómstrar þrátt fyrir að við erum kominn inn í nóvember. Rósir, sef, sólblóm og allt mögulegt annað..
Enn og aftur áttum við góða helgi með Ingu og fjöldskyldu.
Inga kom með Önd og matreyddi hana fyrir okkur eins og henni er einni lagið. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað þetta var gott hjá henni, mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm.
Börnin höfðu það bara gaman og horfðu á sjónvarp, fóru út að labba með Afa og klifruðu í eplatrjám, Liv varð soldið föst uppi í eplatrénu, þá er nú gott að eiga langann og stórann Pabba.
Við Lars lékum okkur í að búa til merkingar á þeirra póstkassa, ansi gaman að gera það og árangurinn er hér fyrir neðan.
Verum í bandi alles..