Kaldur Janúar..

Það er ekki mikið að gerast fyrstu vikurnar á nýja árinu hér í Tarm..

Við dúllum okkur bara og reynum að hafa það huggulegt í kuldanum, býtandi kuldi, snjór og andstyggilegt veður, gott að eiga brenniofn þessa dagana.. Snow

Nonni er búinn að vera hjá okkur nú um helgina, var að keyra heim úr vinnunni á föstudaginn, það tekur 10 – 15 mínútur. Hann varð eitthvað óþolinmóður þegar að hann lenti í föstudagstrafíkinni þannig að hann ákvað bara “að koma við í Tarm” þessi útúrdúr tekur ekki nema 2 og hálfann til 3 tíma hvora leið og ekkert mál þegar að maður er á Mazda Demio.. Cheeze

Það þarf ekki að orðlengja það neitt frekar en við erum búin að eiga góða helgi saman og mikið búið að “Nördast”..

Little Giants..

Stundum þegar ég hef tíma þá kíki ég inn á þessa heimasíðu, https://www.youtube.com/user/LilGiantsConstrCo/videos

MIG LANGAR Í SVONA… Grimace

Ég gæti dundað mér við að stækka kjallarann um heilan helling…

Verum í bandi alles..