1 maí 2016.. 20 ár á Tjørnevej..

Í dag eru liðin 20 ár síðan að við fluttum inn hér á Tjørnevej 6.

Það var góður dagur og ótrúlegt að það skuli vera 20 ár síðan. Það hefur margt skrítið og skemmtilegt gerst á þessum árum og margs að minnast.

Ég gleymi aldrei tilfinningunni þegar við komum inn í húsið í fyrsta sinn, stigum yfir þröskuldinn, horfðum hvort á annað og vorum sammála um að þetta væri okkar hús, þurftum ekki einu sinni að skoða það. Vissum straks að þetta væri okkar hús.

Nú er sumarið loksins komið, hefur látið bíða soldið eftir sér í þetta skiftið.. Síðasta mánudag snjóaði hjá okkur.. ??

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir sem ég tók síðasta mánudag og svo aftur í morgunn.

Ég neyðist sennilega til að grilla í dag í tilefni dagsins og vegna þess að veðrið er svona gott..

Bandi alles..