Besta Mamma í Heimi er búin að prjóna kjól á mig og peysu á Christian.
Nú erum við Lillebror búin að vera hjá Ömmu og Afa alla helgina.
Afi neyddi okkur til að horfa á barnasjónvarp næstum því allann tímann og vildi endilega alltaf vera að knúsa og krama okkur..!!
Amma og Mamma voru vondar við hvora aðra í spilum næstum því alla helgina..!!
Þegar þær voru mest andstyggilegar við hvora aðra, hlógu þær bara.. Skrítið….
Við erum búin að borða mikinn Ost og Ís nú um helgina og erum nú farin heim til Aarhus aftur.