Til Hamingju með SIGURINN Ísland

Hæ hó allesammen.. Christian Ari heiti ég og er stolltur af sigrinum í dag.

Afi er hálfgerður Asni í handbolta greyið, heldur með DÖNUM…. Mhu Ha ha ha ha..
Það eru ekki allir Afar í lagi eða hvað..

Það er snilldar frammistaða hjá þjóð sem hefur ekki fleiri íbúa en heimabærinn minn Århus að ná 5 sæti í svona keppni, geri aðrir betur..

ÍSLAND, STÓRASTA litla þjóð í heimi.

Nú ætla ég að fara að slefa á Afa minn, klína smá hor framan í hann og leyfa honum að halda að við séum sammála í handboltanum.

Ég sé á svipnum á Afa að hann er alveg að fara kalla á Ömmu eða Mömmu, hann verður alltaf svo undarlegur á svipinn kall greyið ef ég rembist svo mikið að ég verð blár í framann, þá segir hann alltaf “Viltu fara til Ömmu litli Ömmustrákur”

Skrítinn kall hann Afi min..