Graði Rauður var Gæðingur, Glæstur Hálftaminn Stóðhestur..
Nú erum við búin að temja Graða Rauð..
Hann er nú hálf lúpulegur þessa dagana greyið, það er ekkert gamann að vera taminn..
Tamningin fellst í því að við erum búin að breyta honum í “Minnsta Húsbíl Vestan Alpafjalla”..
Eða þannig sko…
Við erum búin að prufa að gista í honum tvær nætur og var það bara fínt, nú er svo planið að fara í Noregsreysu í júlí ef það verður hægt..
Hvernig sem verður eða verður ekki þá koma hér fyrir neðan myndir af “Tamningunni..”
(Það spurði maður í dag hvaðann ég fengi allar þessar skrítnu hugmyndir..
Svarið er einfallt..
“Ég er búinn að prufa að vera Fullorðinn einu sinni í heilar 3 mínútur, lengstu og leiðinlegustu mínútur sem ég hef nokkurn tíma lifað….”
Aldrei aftur..
Verum í bandi alles..