Hæ hó alles…

Nú er komin Hvítasunnuhelgi hjá okkur hér í Tarm..

Eins og svo oft áður þá förum við Camping þessa helgi..

Myndin sýnir Graða Rauð til í slaginn..

Í þetta skiftið ætlum við að vera í Vejle, ekki svo langt héðan tekur ekki nema ca. 1 tíma að keyra þangað..

Við erum búin að vera á fullu síðustu daga, búin að klippa hækk og alt mögulegt annað sem þarf að gera á vorin.

Fjóla var að klippa mig í dag og ræddum við hárleingd.. Við vorum kannski ekki alveg sammála um hvað hár ætti að vera langt..

Allt í einu sagði hún “ÚÚÚÚPPPPSSSSSSSSSSSSSS” og svo var ég ansi snöggklipptur… Gleymdi að skifta um kamb á sláttuvélinni..

Ég er ekki sérlega síðhærður þessa daganna…

Það verður EKKI sett mynd af hryðjuverkinu hér á síðuna..

Ég verð með tölvu með mér á Camping, þannig að ef þið þurfið að ná í okkur þá er meillinn johannharaldssonatgmaildotcom..

Verum í bandi alles..