Lítill Trítill hjá Ömmu og Afa í Tarm

Hæ hó Allesammen..

Lítill Trítill heiti ég og er búin að vera í langri heimsókn hjá Ömmu og Afa í Tarm.

Stóra systir og Pabbi og Mamma komu með mig hingað yfir og erum við búin að hafa það heldur notalegt..

Amma er bestust..

Afi er ekki svo slæmur, hann er með ÓSKAPLEGA STÓRANN OG MJÚKANN MAGA.. Svona eiga Afar að vera.. Ég lá á AfaMaga svo lengi í gær að kallgreyið varð alveg búinn og þurfti að henda mér til Mömmu..

Hér fyrir neðan getið þið svo séð myndir af mér og Stóru Systir hjá Afa og Ömmu..

Eins og þið sjáið er Pabbi sannkallaður meistari í að skifta um bleiur, tekur enga stund og mér líður svo vel á eftir.

Stóra Systir og Amma eru soldið uppteknar af sjónvarpinu öðru hverju, það sést vel á svipnum á þeim að þetta er grafalvarlegt…

Verum í bandi alles..