Hæ hó allesammen..
Þá er komið Páskafrí hér í Tarm.
Ég er búinn að vera að gera það sem mér þykir skemmtilegast, leika mér að gömlum myndum.
Þetta eru 2 myndir sem Sigrún Hannibals sendi Fjólu um daginn og voru þær heldur lélegar. Svona gamlar myndir missa lit með árunum og svo koma í þær allskonar rispur og rifur.
Þetta má allt laga með Photoshop, snilldarverkfæri.
Það má leika sér óendanlega mikið með svona myndir, samt alltaf spurning hvenær á að stoppa.
Þegar ég er búinn að fá alveg nóg af annara manna vírusum og tölvubasli þá er ágætt að leika sér svona til að slappa soldið af.
Verum í bandi alles..