Hæ hó allesammen, þá erum við búin að halda jólin hér í Tarm og höfum haft það virkilega huggulegt.
Inga og Lars og Liv og Christian og Nonni voru öll hjá okkur á Aðfangadagskvöld og var mikið um dýrðir hjá okkur.
Liv var “Pakkadama” og stakk sér undir tréð að ná í pakka allt kvöldið og var hún meira en til í að hjálpa fólki við að rífa þá upp.
Á annann í jólum komu Gunnar og Ágústa með fjölskyldum í jólakaffið eins og undanfarin ár og er það alltaf jafngamann.
Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir frá undanförnum dogum..
P.S. Íslenska númerið er enþá bilað og verður það ekki lagað fyrr en eftir áramót, það fór úr sambandi við Tal fyrir jól og leitaði boxið svo lengi eftir sambandinu að það endaði með að brenna yfir, ég er búinn að panta nýtt box….
Verum í bandi alles..