Það er ljótt að sjá hvernig að farið var með Lítið Ljós í leikskólanum..
Einhver strákskratti var með hana á hjóli og druslaðist til að rispa hana svona hressilega..
Bíði hann bara..
Ég ætla að…
Og SVO ætla ég að….
Og þegar ég er búinn að þessu öllu samann þá fyrst ætla ég að spjalla við Pabba hans,
Mömmu Hans, Allar hans Ömmur og Afa og að ég tali nú ekki ums systkini, frændsystkini,
þeirra foreldra og svo framvegis….
Þegar þessu öllu verður lokið þá ætla ég að sparka í alla hunda sem þetta hyski á..
Ég ætla að setja sykur í bensínið á bílnum hans Pabba hans..
Ég ætla að setja matarlím í saumavélaolíuna á saumavélinni hjá Mömmu hans..
Ég ætla að setja Piparmintur í P pilluboxið hjá Litlu systur hans..
Ég ætla að sanna að hann sé kominn af SJÁLFSTÆÐISMÖNNUM…
(Nei nei, ÞAÐ VÆRI OF LANGT GENGIÐ..)
OG HANANÚ.