2 ára í dag, Hjartanlega til Hamingju með daginn Litla Ljós.

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Liv Fjóla,
Hún á afmæli í dag…
Hæ hó allesammen..

Í dag er ég 2 ára stór..

Í tilefni dagsins var haldin afmælisveisla fyrir mig hjá Farmor og Farfar í Bølling og Afa og Amma og Nonni komu í heimsókn Þangað.

Ég fékk mikið af fínum gjöfum.

Mamma bakaði fyrir mig fínustu köku, en KVEIKTI SVO Í HENNI….??

Svo fór ég að blása og blása og þegar að mér tókst að slökkva eldinn voru allir voða glaðir aftur og klöppuðu og skræktu hver í kapp við annann þannig að mér leist eiginlega ekkert á þetta…

Skrítið þetta fullorðna fólk….

Hér fyrir neðan eru myndir sem hann Pabbi minn tók og gaf Afa þannig að þið gætuð verið með í veislunni minni..

Verum í bandi alles….