Gleðilegt Ár allesammen og takk fyrir árið sem er að líða.

Gleðilegt Ár allesammen og takk fyrir árið sem er að líða.

Takk fyrir allar heimsóknirnar hér inn á síðuna á árinu og reyndar undanfarin ár, gaman fyrir okkur að vera í bandi á þennann máta.

Við verðum ein í kotinu í kvöld, Nonni farin til Aarhus að passa saklausar litlar stelpur og Lars og Inga með sínum vinum.

Við ætlum að kynda brenniofninn alveg glóandi, borða góðann mat og sofa svo yfir sjónvarpinu..
Engin ástaða til að breyta því sem vel virkar..

Við erum búin að ganga frá brenninu sem við fengum úr stóru trjánum, sagað, klofið og staflað eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Þessi tré voru “Rauðálmur” og fá svona skemmtilegann rauðann lit eftir fellingu…

Enn og aftur “Gleðilegt Ár allesammen og takk fyrir árið sem er að líða.”

Verið nú dugleg við að skjóta peningunum ykkar upp í loftið í kvöld en farið samt varlega…

Bandi alles…