Hæ hó alles..
Nú er Nonni búinn að redda síðunni minni einu sinni enn og allt farið að virka aftur..
Vandamálið var ekki hér hjá okkur heldur inni á vefhótelinu sem síðan liggur á, það voru einhver samskiftavandamál sem ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra hér. Hann lét flytja síðuna yfir á annað hótel og er síðan búinn að liggja yfir því að endurforita hana þannig að hún keyri sem best á nýja hótelinu…
Við stöndum öll í ævarandiþakkarskuldviðhannogniðjahans fyrir alla fyrirhöfnina.
Maggi bróðir kom í heimsókn nú í vikunni og var í 3 daga hjá okkur, hann er í haustfríi í vinnunni. Hann hafði Emelíu Sörudóttir með og áttum við fínan tíma samann. Emelíu leiddist ekkert hér á elliheimilinu, gat fengið að leika sér online og spila við Fjólu. Höfðu þær báðar jafn gamann af.
Úff,,,, er kallinn að taka myndir aftur..
Verum í bandi alles…