Hæ hó allesammen…
Nú er ég hjá Ömmu og Afa í Tarm
Pabbi og Mamma fóru til Oxford í nokkra daga og ég verð að passa Ömmu og Afa á meðan..
Afi er nú ekki sérlega klókur, ég þarf ekki annað en að fara í skóna hans og brosa, þá hleypur hann af stað greyið og eltir mig og eltir og nær mér aldrei sama hvað hann reynir, æ þessi gamalmenni, vitið er ekki meira en Guð gaf..
Mamma er eitthvað að verða skrítin í laginu, belgurinn á henni er nææææææstum því eins stór og á Afa.
Enn Pabbi elskar hana samt.
Ég er búin að vera með smá ælupest á meðan Mamma er í Oxford, baaara fyrir Ömmu…..
Vá, er ekki Mamma bara orðin STÓR..
Hæ hæ…